Sunneva Ása Weisshappel gerir búninga fyrir Íbúð 10B í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Sunneva Ása Weisshappel útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2013 og lauk meistaranámi í myndlist frá Goldsmiths-háskólanum í London og Listaháskóla Íslands árið 2024. Sunneva vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og búninga- og leikmyndahönnuður fyrir leiksýningar, dansverk og kvikmyndir. Sunneva hefur sýnt myndlistarverk sín á Íslandi, í París, London og New York, m.a. á Market Art Fair, í Gerðarsafni, Nýlistasafninu, á Lunga og Sequences Art Festival. Hún starfar með tveimur galleríum, Þulu og Robilant + Voena. Sunneva hefur hannað búninga og gervi fyrir fjölda sýninga, m.a. Óþelló og Álfahöllina í Þjóðleikhúsinu, Njálu og Guð blessi Ísland í Borgarleikhúsinu, Rómeó og Júlíu hjá ÍD, The Enemy of the Duck í Norska þjóðleikhúsinu, Hamlet hjá Staatstheater Hannover, Othello hjá Staatsschauspiel Dresden, Rómeó og Júlíu hjá Staatsoper Munchen, Mutter Courage hjá Hessisches Staatstheater Wiesbaden og óperuna Siegfried hjá Staatsoper Karlsruhe. Sunneva stýrði jafnframt tilraunaleikhúsi í Kaupmannahöfn og hefur fengist við ýmiskonar dans- og gjörningalist. Sunneva hefur hannað leikmyndir fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndir, Kötlu, Ófærð III og Snertingu. Jafnframt leikstýrði hún Uppskriftarbókinni á RÚV. Sunneva hefur nokkrum sinnum verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna og hún hlaut þau fyrir Njálu. Hún hefur jafnframt verið tilnefnd til Edduverðlaunanna og hlaut þau fyrir Snertingu.