Baldvin Hlynsson Baldvin Hlynsson hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi, unnið bæði á sviði og í hljóðveri með fjölda listamanna. Hann er menntaður í djasspíanóleik frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi og MÍT, og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem bjartasta vonin í flokki djass og blús árið 2017. Hann hefur komið að fjölda hljómplatna sem upptökustjóri, lagahöfundur og hljóðfæraleikari bæði hérlendis og erlendis. Baldvin spilar og er hljómsveitarstjóri í söngleiknum Ormstungu og spilaði í söngleiknum Stormi í Þjóðleikhúsinu.