/
Námskeið
Framleiðsla, tækni og sýningarstjórnun

Þrjú námskeið verða haldin í Þjóðleikhúsinu leikárið 2026 – 2027.

 

Áhugaleikfélög sem og leikfélög framhaldsskóla landsins eru mikil auðlynd og sinna gríðarlega mikilvægu starfi um allt land. Námskeiðin eru liður í að nýta þá þekkingu og hæfni sem býr í Þjóðleikhúsinu til þess í að styrkja og valdefla þá starfsemi og þar með leikhúsmenningu landsins til framtíðar.

Þann 24. október verður haldið námskið í framleiðslu og verkefnastjórnun.

Í janúar 2027 verða haldin námskeið annars vegar í ljósa- og hljóðhönnun og hins vegar í sýningarstjórnun.

Námskeiðin verða kennd af framleiðslustjóra, sýningarstjóra og tæknifólki hússins og eru kennd í Þjóðleikhúsinu.

Námskeið í framleiðslu sviðsverka

Laugardaginn 24. október – Kl. 09:30 – 15:00

Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhúsinu.

Fjöldi nemenda takmarkast við 20 manns. 

Verð: 15.000 krónur

 

Skráning hér

 

Námskeið sem hentar vel fyrir nefndarmeðlimi leikfélaga sem og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á verkefnastýringu og framleiðslu leiksýninga sem á sér stað áður en æfingarferli hefst, sem og eftirfylgni á framleiðsluferlinu fram að frumsýningu. Einnig fá þátttakendur tækifæri á að efla færni sína í skipulagi, samskiptum og lausnamiðaðri hugsun í lifandi sviðslistum.

Farið verður yfir:

  • Hlutverk framleiðandans / framleiðslustjórans.
  • Hugmyndavinnan, val á verkefni og starfsfólki
  • Undirbúningsvinna: rýmið, höfundarréttur o.fl.
  • Fjármögnun verkefna og fjármálastjórnun
  • Að setja upp framleiðsluferli og gerð framleiðsluáætlunar
  • Markaðssetning sýninga
  • Áhættustjórnun og öryggi í framleiðslu
  • Verkefnastjórnun framleiðsluferla, úthlutun tíma, samskipti o.fl.

Kennari er Máni Huginsson, framleiðslustjóri Þjóðleikhússins.

 

Tækninámskeið – Ljós og hljóð

 

Laugardagur 23. janúar  – Ljós –  09:30 – 12:30 og 13:30-15:00

Sunnudagur 24. janúar  – Hljóð – 09:30 – 12:30 og 13:30 -15:00

Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhússins.

Skráning og nákvæm tímasetning verður auglýst síðar

 

Námskeiðið er ætlað ljósa- og hljóðmönnum áhugaleikhúsa /  framhaldsskólaleikfélaga og þeirra sem vinna með ljós/hljóð á öðrum vettvangi.

Þáttakendur þurfa að hafa náð 17 ára aldri og helst að hafa eitthvað fengist við ljósa eða hljóðvinnu áður

Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhúsinu og leiðbeinendur eru tæknimenn Þjóðleikhússins.

Sýningarstjóranámskeið

 

Námskeiðið fer fram í Þjóðleikhúsinu vorið 2026. 

Fjöldi nemenda takmarkast við 15 manns. 

Skráning og nákvæm tímasetning verður auglýst síðar

Námskeið sem hentar vel fyrir nefndarmeðlimi leikfélaga sem og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á sýningarstjórnun og efla færni sína í skipulagi, samskiptum og lausnamiðaðri hugsun í lifandi sviðslistum.

Hvað gerir sýningarstjóri? Þetta námskeið veitir innsýn í hlutverk og ábyrgð sýningarstjóra í leikhúsi og útskýrir hvernig þau tryggja að ferlið sé samstillt og gangi hnökralaust.

  • Tæknileg stjórnun æfinga og sýninga
  • Hlutverk sýningarstjórans
  • Undirbúningur og skipulagning æfinga, æfingaáætlun o.fl.
  • Æfingastjórnun, vinna á æfingum og samskipti.
  • Gerð keyrsluhandrits.
  • Sviðsstjórnun, leikmunavarsla o.fl.
  • Að keyra sýningu.
  • Öryggismál á sviði, stöðvun sýninga.

 

Kennarar eru sýningarstjórar Þjóðleikhússins.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími