Skíthrædd

Skíthrædd

Grátbroslegur söngleikur um óttann
SVIÐ
Kjallarinn
Verð
4.900 kr.
Lengd
70 – 80 mín

Hún leikur, dansar og syngur sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin.

„Skíthrædd” – er tragíkómískur sjálfsævisögulegur söngleikur eftir Unni Elísabetu, sem deilir persónulegum sögum úr lífi sínu. Unnur sýnir í verkinu hvernig áskoranir lífsins, hvort sem þær tengjast líkamlegum kvillum, kvíða eða lífshamlandi hræðslu eru ekki óyfirstíganlegar. Unnur tekur þetta alla leið og sýnir það að ef þú getur breytt lífshamlandi hræðslu í Broadway-númer þá er allt mögulegt. Hún leikur, dansar og syngur sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin. Með henni á sviðinu til halds og trausts eru Annalísa Hermannsdóttir og Einar Lövdahl Gunnlaugsson. Tónlistastjóri er Halldór Eldjárn . Sýningin er í leikstjórn Katrínar Halldóru Sigurðardóttur.

Leikarar og hlutverk

Leikkona og söngkona: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.

Söngkona og hljómsveitarmeðlimur: Annalísa Hermannsdóttir

Söngvari og hljómsveitarmeðlimur: Einar Lövdahl Gunnlaugsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur og tónskáld: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Leikstjóri: Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Tónlistarstjóri: Halldór Eldjárn

Ljósahönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir

Aðstoðarleikstjóri: Vigdís Hafliðadóttir

Framleiðandi: Kristín Ósk Sævarsdóttir

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími