Grínkjallarinn
Alltaf nýtt grín
Uppistand er nú þegar orðið þjóðaríþrótt íslenskra brandarasmiða og þess vegna breytum við Kjallaranum í alvöru grínbúllu í vetur.
Grínstjórar Kjallarans hita upp og kynna úrvalslið íslenskra uppistandara á fimmtudagskvöldum. Þú heyrir alltaf nýtt grín í Grínkjallaranum.
Meðal gesta sem koma fram í vetur eru: Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Saga Garðars, Snjólaug Lúðvíks, Vigdís Hafliða, Vilhelm Neto, Jóhann Alfreð, Rebecca Scott, Inga Steinunn og fleiri og fleiri.
Næsta grínkvöld er fimmtudaginn 19. desember en dagskrá verður kynnt við fyrsta tækifæri.
Húsið opnar klukkan 20:00 og grín hefst 20:30.
KAUPA MIÐA