/
Laus störf

Hefur þú áhuga á því að starfa í Þjóðleikhúsinu?

/

Þjóðleikhúsið er lifandi og skapandi vinnustaður þar sem enginn dagur er eins.

Í Þjóðleikhúsinu starfa yfir eitt hundrað fastráðnir starfsmenn, lista- og leikhústæknifólk. Einnig fjölmargir verkefnaráðnir listrænir stjórnendur og listamenn, auk starfsfólks í tímavinnu við gestamóttöku, leikmyndaskiptingar, sviðsvinnu og fleira. Leikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem jákvæð og uppbyggileg samskipti og skýrir ferlar eru í forgrunni.

The National Theatre of Iceland is a vibrant cultural institution with the mission to captivate and entertain audiences while also promoting thought, diversity, and inspiration. The National Theatre of Iceland actively engages in dialogue with the public and strives to cultivate a greater appreciation for the art of theatre. We are committed to inclusivity and endeavour to engage with diverse segments of society.

  • Skráðu þig hér hafir þú áhuga á að vera á lista vegna tímavinnu í leikhúsinu.
  • Register here to be considered for a contract based job at the NTI

 

Óperan auglýsir fyrirsöng fyrir starfsárið 2026–2027

/

Óperan leitar að hæfileikaríkum einsöngvurum fyrir starfsárið 2026-2027. Fyrirsöngurinn fer fram dagana 4.-6. maí næstkomandi. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl.

Prufur fyrir kór Óperunnar verða auglýstar síðar.

 

Leitað er að

  • Einsöngvurum með framhaldsmenntun í klassískum söng sem ýmist:
  • óska eftir stöðu í sönghópi Óperunnar (ensemble)
  • vilja koma til greina í hlutverk í óperunni Falstaff eftir Verdi, sem verður frumsýnd í mars 2027 og sungin á íslensku
  • vilja koma sér á framfæri vegna annarra verkefna eða framtíðarhlutverka

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn

  • Ferilskrá
  • Efnisskrá (repertoire)
  • Mynd
  • Hlekk á nýlega hljóð- eða myndupptöku
  • Nánari upplýsingar eftir því sem við á

Nánari upplýsingar

Óperan áskilur sér rétt til að boða einungis hluta umsækjenda í fyrirsöng.

Valdir umsækjendur verða boðaðir í fyrirsöng og fá sendar nánari upplýsingar.

Öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Upplýsingar um fyrirsöng veita:

Finnur Bjarnason
Óperustjóri
finnur.bjarnason@leikhusid.is

Richard Schwennicke
Tónlistarstjóri
richard.schwennicke@leikhusid.is

Sækja um hér: Óperan auglýsir fyrirsöng fyrir starfsárið 2026-2027

Framleiðslu- og verkefnastjóri Óperunnar

/

Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu framleiðslu- og verkefnastjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Framleiðslu- og verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd verkefna frá undirbúningi til verkloka í nánu samstarfi við óperustjóra, tónlistarstjóra og aðra lykilstarfsmenn. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á sterka skipulags- og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða skipulag og framkvæmd verkefna frá undirbúningi til verkloka 
  • Móta og innleiða verkferla í verkefnastjórnun og framleiðslu
  • Samhæfa vinnu framleiðsludeilda og tækniteyma
  • Gera tíma-, mannafla-, og fjárhagsáætlanir og fylgja þeim eftir
  • Skipuleggja vikulega æfingadagskrá í samstarfi við tónlistarstjóra og leikstjóra ásamt því að vera daglegur tengiliður við söngvara og annað listafólk

Menntun og hæfniskröfur

  • Reynsla af framleiðsluferli sviðslista (ópera, leikhús, tónleikar eða sambærilegt)
  • Reynsla af stjórnun flókinna verkefna
  • Geta til að vinna sjálfstætt og taka frumkvæði 
  • Góð hæfni í skipulags- og áætlanagerð
  • Reynsla af gerð fjárhagsáætlana
  • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og vinnuferlum listafólks mikill kostur
  • Góð enskukunnátta skilyrði
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni nauðsynleg

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn

Ítarlegt kynningarbréf með ferilskrá ásamt umsagnaraðilum og afrit af prófskirteinum.

Óperan áskilur sér rétt til að ráða ekki í starfið ef enginn umsækjandi uppfyllir settar kröfur. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026. 

Nánari upplýsingar veita 

Finnur Bjarnason, óperustjóri
finnur.bjarnason@leikhusid.is
Eyjólfur Gíslason, mannauðsstjóri
eyjolfur.gislason@leikhusid.is

Sækja um hér: Framleiðslu- og verkefnastjóri Óperunnar | Ísland.is

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími