/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Daði Víðisson

Leikari
/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026

Daði Víðisson er stúdent úr Menntaskólanum við Hamrahlíð af opinni braut þar sem hann lagði áherslu á íslensku, dönsku og heimspeki. Hann stundaði áður nám í Hagaskóla og Melaskóla. Daði hefur aflað sér fjölbreyttrar reynslu á sviði leiklistar og talsetningar. Daði lék í kvikmyndinni Abbababb árið 2022 og í Ronju Ræningjadóttir í Þjóðleikhúsinu árið 2018. Þá hefur hann talsett yfir 30 verkefni fyrir Stúdíó Sýrland og Myndform. Sumarið 2025 starfaði Daði við Listhópa Hins Hússins með verkefnið Karaokjavík. Hann sigraði Stóru upplestrarkeppnina 2019 og var í sigurliði Leiktu Betur árið 2023. Daði er í æfingahóp Improv Ísland og sýnir mánaðarlega með þeim í þjóðleikhúskjallaranum.

/
Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími