Davíð Þór Katrínarson útskrifaðist úr Stella Adler Academy of Acting í Los Angeles árið 2015. Hann leikur í Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu í vetur og er jafnframt einn höfunda verksins. Hann hefur starfað í öllum atvinnuleikhúsum landsins og leikið í fjölda uppsetninga, m.a. í Ræmunni og Ríkharði III í Borgarleikhúsinu, And Björk of course hjá Leikfélagi Akureyrar og Íslandsklukkunni í uppsetningu leikhópsins Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Hann hefur einnig leikið í fjölmörgum innlendum og erlendum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum. Davíð er jafnframt tónlistarmaður og kemur fram undir listamannsnafninu Svarti Laxness. Hann er meðlimur í hljómsveitinni Hatara. Davíð var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir leik sinn í Íslandsklukkunni og Ræmunni.
Starfsfólk Þjóðleikhússins