Flestir hópar ættu að geta fundið einhverjar æfingar við sitt hæfi í þessu litla safni hér til vinstri. Eins og sjá má er leikjunum raðað í nokkra flokka sem ættu að skýra sig sjálfir.
Nýjum hópum er ráðlagt að skoða fyrst Góð ráð til stjórnanda leiksmiðju og Kynningar- og hópleiki. Flestir leikirnir henta breiðum aldurshópi, eða eru þannig að einfalt er að aðlaga þá að mismunandi hópum.
Ekkert er nýtt undir sólinni. Æfingarnar eru fengnar héðan og þaðan og er vísað til heimilda þegar það á við. Orðalag og framsetning æfinganna er hins vegar Vigdísar Jakobsdóttur. Vinsamlegast getið heimildar sé vitnað beint í þessa texta.