Leikhúsgesturinn
Nokkru áður en sýning átti að hefjast, tók sætavísa eftir því að einn leikhúsgestanna hafði breitt úr sér og lá þvert yfir þrjú sæti í salnum. Virðuleg eldri hjón sem áttu miða á þessum stað stóðu hjá. Sætavísan gekk til mannsins og bað hann vinsamlegast um að athuga að hver gestur ætti einungis rétt á einu sæti. Maðurinn umlaði eitthvað ógreinilegt, og hreyfði sig hvergi, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli sætavísunnar. Við þetta reiddist hún, bað eldri hjónin að afsaka sig, og hljóp til þess að sækja framkvæmdastjóra leikhússins. Þegar maðurinn hlýddi henni ekki heldur, sáu þær engan annan kost í stöðunni en að fresta sýningunni og hringja á lögregluna, sem kom á staðinn innan stundar. ,,Hvað heitir þú, góði?" spurði annar lögregluþjónninn. ,,Kristján" svaraði maðurinn þá stynjandi. ,,Nú, jæja. Og hvaðan kemur þú, Kristján?" spurði lögregluþjónninn þá. ,,Af svölunum" svaraði maðurinn og umlaði.
Spurning: Hversu marga leikara þyrfti til þess að skipta um ljósaperu?
Svar: 500. Einn til þess að skipta um peruna og 499 til þess að segja: ,,Ég gæti nú gert þetta miklu betur!"
Spurning: Hversu marga leikmunaverði (propsara) þyrfti til þess að skipta um ljósaperu?
Svar: Síðan hvenær þurfa þeir ljós?
Spurning: Hversu marga leikara þarf til þess að skipta um ljósaperu?
Svar: Einn. Leikarinn heldur í ljósaperuna, og veröldin snýst um leikarann.
Spurning: Hvað er svart og skrælnað og hangir neðan úr loftinu?
Svar: Leikari að skipta um ljósaperu.
Spurning: Hver er munurinn á Guði og hljóðmanni?
Svar: Guð heldur ekki að hann sé hljóðmaður.
Spurning: Af hverju segja hljóðmenn alltaf 1-2 1-2 þegar þeir prófa hljóðkerfið?
Svar: Ef þeir gætu talið hærra væru þeir ljósamenn.
Þumalputtaregla fyrir tæknifólk:
Gerðu strax það sem leikstjórinn segir þér að gera, eins og hann segir þér að gera það, og gerðu það svo aftur eins og á að gera það.
Það sem öruggt er að aldrei nokkurn tíma verður sagt í leikhúsi:
Sýningarstjórinn:
... Það lítur út fyrir að það verði tími til að taka eina auka generalprufu.
... Engar áhyggjur. Verið eins lengi í pásu og þið viljið.
... Það eru allir löngu tilbúnir.
... Heyrðu, þetta heppnaðist bara fullkomlega í fyrstu tilraun. Höldum bara áfram.
... Headsettið er alveg í fullkomnu lagi.
... Það eru allir tilbúnir, hvenær sem þú vilt.
... Þetta tók enga stund.
Framleiðandinn/framkvæmdastjórinn:
... Auðvitað er til nóg af peningum fyrir alla.
... Það verða peningar afgangs.
Leikstjórinn:
... Vá, hönnuðirnir hittu svo sannarlega naglann á höfuðið, ekki satt?
... Nei, í dag er tæknirennsli. Við vinnum í þessu atriði seinna.
... Skiptingarnar milli atriða ganga of hratt fyrir sig.
... Auðvitað veit ég að það verður allt tilbúið þegar kemur að frumsýningu.
... Tæknimennirnir? Þeir, eru alveg frábærir.
Ljósahönnuðurinn:
... Ég hef öll þau ljós sem ég þarf á að halda, takk fyrir.
... Ég er með alla þá dimmera sem ég þarf á að halda.
... Þetta er einstaklega vel hannað ljósaborð. Fullkomið raunar.
... Mætti ég kannski líta við á saumastofunni og skoða búningana?
... Viljið þið hafa fyrstu tækniæfinguna rennsli án stoppa? Ekkert mál!
Leikarinn:
... Nei, nú skulum við ekki tala meira um mig.
... Mér finnst að það verði að stytta atriðið mitt.
... Þessi búningur er SVO þægilegur.
... Ekkert mál. Ég geri þetta bara sjálf/ur.
... Ég skal standa hér og snúa baki í áhorfendurna.
... Ég er viss um að það var einhver búinn að segja mér að það yrði veggur hérna. Ég var bara búinn að gleyma því.
... Án tækniliðsins væri engin sýning. Við skulum þakka þeim.
Sviðsmenn:
... Jú, jú, það er pláss fyrir þetta hér.
... Við mætum bara snemma í fyrramálið og gerum þetta.
... Nei, nei. Ég er viss um að það er okkar verk.
... Er eitthvað sem ég get gert til að hjálpa?
... Mættum við gera þessa skiptingu aftur, takk?
... Þetta er frábær sýning.
... Við þurfum ekki að vera svona mörg í þessari skiptingu.