Um nokkurra ára bil voru á vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins gefnir út svokallaðir fræðslupakkar í tengslum við valdar sýningar hússins. Markmiðið með útgáfu fræðslupakkanna var að þjónusta kennara sem vilja nota leiklist í skólastofunni og/eða nýta sér uppfærslur leikhússins sem stökkpall í kennslu hinna ýmsu greina. Í þeim er að finna kennsluhugmyndir og ýmiss konar ítarefni tengt sýningum. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um fræðslupakka. Margar æfinganna sem þar koma fram má nýta í víðara samhengi en í tengslum við þessar ákveðnu sýningar.
Nýjustu fræðslupakkarnir
Utan gátta eftir Sigurð Pálsson
Þessi fræðslupakki er hugsaður sem stuðningur við kennara efsta stigs grunnskóla og framhaldsskólakennara sem vilja nýta sér leiksýninguna Utan gátta sem gátt að höfundarverki Sigurðar Pálssonar og til að veita nemendum innsýn í heim leikhússins. Auk ítarefnis er í fræðslupakkanum nokkuð af kennsluhugmyndum sem tengjast efni og stíl Utan gátta.
Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan eða á myndina til að sækja fræðslupakkann.
Sá ljóti eftir Marius von Mayenburg
Fræðslupakki miðaður að framhaldsskólastigi, með áherslu á efni verksins, þ.e. vangaveltur um ímynd og ytra útlit. Kennsluhugmyndir tengjast m.a. kennslugreinunum leiklist, myndlist og lífsleikni.
Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan eða á myndina til að sækja fræðslupakkann.
Fræðslupakki - Sá ljóti. Kennsluhugmyndir, leikir og æfingar.
Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til þess að sækja skjalið.
norway.today fræðslupakki - Kennsluhugmyndir, leikir, æfingar og ítarefni. (Word)
Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
Fræðslupakki miðaður að yngsta og miðstigi grunnskóla. Áhersla á ævintýrið, skapandi skrif, munnlega tjáningu, leiklist og búningagerð.
Fræðslupakkinn er í tveimur hlutum. Smellið á hlekkina hér fyrir neðan til þess að sækja skjölin.
Skilaboðaskjóðan fræðslupakki - Kennsluhugmyndir, leikir, æfingar og ítarefni. (pdf)
Skilaboðaskjóðan myndir - Powerpoint kynning með ljósmyndum af helstu persónum verksins.
Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur
Fræðslupakki fyrir kennara yngsta stigs grunnskóla, og e.t.v. elsta árgangs í leikskóla. Áhersla á íslensku, ritun, brúðugerð og leiklist.
Ath. að fræðslupakkinn er í tveimur hlutum.
Smellið á hlekkina hér fyrir neðan til að sækja skjölin.
Hluti 1 - kennsluhugmyndir og ítarefni (pdf)
Hluti 2 - Powerpoint kynning á höfundi og brúðugerð í verkinu (ppt)