Einstaklega falleg brúðusýning fyrir fullorðna áhorfendur eftir brúðumeistarann Bernd Ogrodnik, byggð á meistaraverki Hemingways
Bernd Ogrodnik hefur um árabil heillað bæði börn og fullorðna með brúðusýningum sínum, jafnt hér á landi sem víða um heim. Brúðusýning hans fyrir fullorðna Umbreyting - ljóð á hreyfingu, sem var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 2006, hlaut mikið lof hér heima og erlendis. Hann hefur einnig sýnt hér í Þjóðleikhúsinu Pétur og úlfinn og Klókur ertu, Einar Áskell.
Gamli maðurinn og hafið var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík á liðnu vori og hlaut afar góðar viðtökur. Í þessari nýju sýningu byggir Bernd á sígildu meistaraverki Hemingways um eilífa lífsbaráttu mannsins í óblíðum heimi.
Ljóðræn og ægifögur sýning um gamlan mann, lítinn bát, risastóran fisk og hið óendanlega haf.
Handrit, sviðsmynd og brúðugerð: Bernd Ogrodnik. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Leikmyndarsmíði og leikmunagerð: Frosti Friðriksson, Högni Sigurþórsson, Bernd Ogrodnik. Lýsing: Lárus Björnsson. Hljóðmynd: Halldór Snær Bjarnason. Þýðing: Ásdís Þórhallsdóttir og leikhópurinn.
Flutningur: Bernd Ogrodnik. Sögumaður: Egill Ólafsson. Raddir: Egill Ólafsson, Valgeir Skagfjörð.
Samstarfsverkefni Brúðuheima og Þjóðleikhússins.
Sýningar hefjast í Kúlunni í nóvember.
*****
Fréttablaðið
"Leikhúsgaldur sem menn ættu ekki að láta fram hjá sér fara." Fréttatíminn.
Reykjavík Arts Festival
The Old Man and the Sea
National Theatre, Small Stage (Kúlan)
20, 21, 22 & 26 May
Price: 2.500 ISK
... an old man, a small boat, a giant fish and the endless ocean ...
Ernest Hemingway’s classic tale of an epic fight retold through the poetic means of Puppet Theater adapted by Bernd Ogrodnik.
First published in 1952, The Old Man and the Sea is one of Hemingway's most enduring works. Told in language of great simplicity and power, it earned Hemmingway both the Pulitzer Prize for Fiction and Nobel Prize in Literature.
During the 2006 Reykjavik Arts Festival Bernd Ogrodnik mesmerized audiences with the premiere of his ground-braking “Metamorphosis”, which has since traveled around the globe to great acclaim. He now continues presenting Puppet Theater for adult audiences with his version of “Old Man and the Sea”.
The classic theme of man cast against the forces of nature and courage in the face of defeat, sounds all too familiar for Icelandic audiences. In fact, rumor has it that Hemingway found the inspiration for his famed novel by reading Gunnar Gunnarsson´s masterpiece “Aðventa”, (The good shepherd), written in 1937 and later translated into English.
“BUT MAN IS NOT MADE FOR DEFEAT, A MAN CAN BE DESTROYED BUT NOT DEFEATED”
Presented by Brúðuheimar in cooperation with the National Theater of Iceland.
Artists
Script, puppets, set design and performed by Bernd Ogrodnik
Directed by Þórhallur Sigurðsson
Light design by Lárus Björnsson
Narrated by Egill Ólafsson
Set and props construction by Frosti Friðriksson and Bernd Ogrodnik
Sound recordings by Halldór Bjarnason