Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!

eftir William Shakespeare

Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!
Sigurður Skúlason leikari og Benedikt Árnason leikstjóri eiga hvor um sig að baki langan feril í leikhúsinu og hafa kynnst mörgu af því besta í leikbókmenntum heimsins. Nú bjóða þeir okkur inn í heim Williams Shakespeares, í sýningu sem er hugsuð öðrum þræði sem þakkaróður til leiklistarinnar og eins þess besta sem hún hefur af sér alið – verka leikskáldsins Williams Shakespeares.

Sýningin er einleikur byggður á brotum úr leikritum og sonnettum Shakespeares. Fjallað er um manninn og vegferð hans, og samlíkingu lífs og leikhúss. Áhorfendur ferðast inn í völundarhús mannssálarinnar þar sem á vegi þeirra verður hið góða og illa, rétt og ranga, fagra og ljóta, guðdómlega og djöfullega!

Leikstjórn: Benedikt Árnason
Leikari: Sigurður Skúlason
Handrit: Sigurður Skúlason og Benedikt Árnason
Þýðandi: Helgi Hálfdanarson

Frumsýning í Leikhúskjallaranum í október.

Leikstjórn

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 2900 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
02.10.2011 
Svið:
Gestasýningar 
Lengd:
1 klst. 40 mín. 



Letur breytingar


Leit