Hreinsun

eftir Sofi Oksanen

Hreinsun
“Því að sá sem semur sig að þeim sem hafa völdin mun búa við öryggi…”

Áleitið og óvægið skáldverk sem vakið hefur mikið umtal. Í senn saga um baráttu kúgaðra og niðurlægðra einstaklinga og reynslu heillar þjóðar af harðstjórn og ófrelsi.

Hreinsun er meðal umtöluðustu skáldverka undanfarinna ára. Leikritið var frumflutt í finnska Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í kjölfarið skrifaði höfundurinn skáldsögu upp úr efni þess sem farið hefur líkt og eldur í sinu um Evrópu, víða orðið metsölubók og sankað að sér verðlaunum. Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Hreinsun á liðnu ári. Skáldsagan kom út hjá Máli og menningu í fyrra og hefur notið mikillar hylli íslenskra lesenda.

Leikritið hefst stuttu eftir að Eistland öðlast sjálfstæði á tíunda áratug liðinnar aldar. Á litlum eistneskum sveitabæ býr gömul kona, Aliide, safnar jurtum og sultar ber, líkt og gert hefur verið kynslóð fram af kynslóð í þessari sveit. Einn morguninn finnur hún unga ókunna stúlku, Zöru, í garðinum hjá sér illa til reika og á flótta. Þessar tvær konur, sem virðast ekki þekkjast, búa  báðar yfir leyndarmálum sem þær vilja ekki ljóstra upp um en smám saman kemur í ljós að leyndir þræðir tengja örlög þeirra saman. Þessi óvænta heimsókn neyðir eldri konuna, Aliide, til að takast á við sársaukafulla hluti úr fortíð sinni og fortíð þjóðar sinnar og hverfa aftur til þess tíma þegar hún var ung og ástfangin, og kommúnistar hertóku landið. En um leið og fortíðin herjar á Aliide eru miskunnarlausir kúgarar Zöru á hælum hennar.

Hreinsun er einstaklega áhrifamikið verk um ást, grimmd og svik, og örvæntingarfulla baráttu manneskjunnar fyrir því að lifa af ofbeldi og niðurlægingu og verða heil að nýju.

Þjóðleikhúsið býður Margréti Helgu Jóhannsdóttur velkomna á svið eftir áratuga farsælan feril hennar hjá Leikfélagi Reykjavíkur.






Hér koma sýningardagarnir...
-
"Áhugaverð sýning um brennandi málefni."
EB, Fréttablaðið
 
"Þessar leikkonur [Margrét Helga, Arnbjörg Hlíf og Vigdís Hrefna] vinna þrekvirki, sér í lagi Vigdís Hrefna sem er algjörlega mögnuð í þessari uppfærslu ... Stefán Jónsson leikstjóri skilar þessari áleitnu sögu Oksanen í minnisstæðri sýningu. Hann er næmur á það sem mestu skiptir, hreyfiafl sögunnar og þær kenndir sem búa að baki þess að ágætis fólk tekur virkilega vondar ákvarðanir."
KHH, Fréttatíminn
 
"Hreinsun er dýrmætt stykki ekki síst vegna þess að í því eru þrjú stór kvenhlutverk sem gera nærri ofurmannlegar kröfur til þeirra sem taka þau að sér. Það var mikil reynsla að verða vitni að því í leikhúsinu í gær hvernig leikkonurnar þrjár tóku á verkefni sínu, hver á sinn hátt en allar þannig að seint gleymist. ... Það er mikil gæfa íslensku leikhúsi að eiga listamenn á borð við þessar þrjár leikkonur ... Það gefur auga leið að Stefán Jónsson hefur fulla stjórn á sínu öndvegisliði hvaða hlutverk sem það fær."
SA, tmm.is

Verð

Fullorðnir: 4300 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
27.10.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 40 mín. 



Letur breytingar


Leit