Nýtt íslenskt barnaleikrit með söngvum á Stóra sviðinu, sprellfjörugt verk um forseta, prinsessu, draug og landnámshænu.
Sýningin var tilnefnd til Grímunnar sem besta barnasýning leikársins.
Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í fyrsta sinn tónlist fyrir leikhús. Gerður Kristný og Bragi Valdimar eiga heiðurinn af söngtextum í sýningunni.
"Þeir sem eru alltaf með hjartað í buxunum eru ekki með hjartað á réttum stað."
Forsetinn á Bessastöðum er að drukkna í skyldustörfum og bréfaflóði, en dreymir um að fá tíma til að skoða skýin, eignast góða vini og borða pönnukökur. Hann fær í heimsókn kóng og drottningu, með barnabarnið sitt, prinsessuna. Þegar konungshjónin eru rokin af stað til að skoða íslenska náttúru halda forsetinn og prinsessan í ævintýralega för um fjöll og firnindi, til að koma mikilvægri kransaköku í réttar hendur. En ekki fer allt eins og til er ætlast – enda er gamall, hrekkjóttur bakaradraugur á kreiki!
Ballið á Bessastöðum er nútímalegt og skemmtilegt ævintýri fyrir alla krakka.
Tónlistin í sýningunni kemur út á geislaplötu í tengslum við frumsýningu verksins.
Ef þú trúir því ekki að beljur kunni að syngja – komdu þá og sjáðu með eigin augum!
Hlustaðu á titillagið "Ballið á Bessastöðum"
„Mikill fengur að fá nýtt og vel skrifað barnaleikrit á fjalirnar.“
Salka Guðmundsdóttir - Víðsjá
„Þórunn Arna Kristjánsdóttir nær svo góðum tökum á prinsessunni að það er vel þess virði að skella sér á ball á Bessastöðum.“
Elísabet Brekkan – Fréttablaðið
„Gleði!“
„Og af því að enginn er eyland – ekki forseti og ekki prinsessur ekki frekar en íslensk alþýðubörn – þá mun gleði barnanna yfir Ballinu á Bessastöðum færa gleði í ótal sálir aðrar“
Guðmundur S. Brynjólfsson – Morgunblaðið
„Þetta er fjörug sýning, full af óvæntum smáum og stórum atriðum og sniðugum lausnum“
Silja Aðalsteins - TMM