eftir Thorbjörn Egner
Þessi fallega og fjöruga sýning á hinu sívinsæla barnaleikriti Egners, Kardemommubænum, sló svo sannarlega í gegn á síðasta leikári. Allir þekkja ræningjana þrjá, Kasper, Jesper og Jónatan, hinn blíðlynda bæjarfógeta Bastían, yndislegu stúlkuna Kamillu og hina stórlyndu Soffíu frænku – að ljóninu ógleymdu!