Þjóðleikhúsið festir kaup á nýju íslensku leikverki eftir tvær ungar skáldkonur
Þjóðleikhúsið mun sýna á næsta leikári nýtt íslenskt leikrit, Karma fyrir fugla, eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur. Verkið hefur verið um nokkra hríð í vinnslu og þróun innan leikhússins, og hefur nú verið sett á verkefnaskrá leikársins 2012-1013. Karma fyrir fugla er frumraun þeirra Kristínar og Kari sem leikskálda, en þær eru báðar myndlistarmenntaðar. Kristín hefur einnig vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir ljóð sín og smásagnasafnið Doris deyr.
Karma fyrir fugla er óvenjulegt og ágengt verk sem fjallar meðal annars um ofbeldi, ójafnvægi, ranglæti og fegurð.
Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur meðal annars leikstýrt á undanförnum árum í Þjóðleikhúsinu rómuðum uppfærslum á nýjum íslenskum verkum, Utan gátta og Svörtum hundi prestsins. Um leikmynd sér Anna Rún Tryggvadóttir, en þetta er hennar fyrsta leikmynd við Þjóðleikhúsið
Með aðalhlutverk í sýningunni fer Þórunn Arna Kristjánsdóttir, en aðrir leikarar eru Hilmir Jensson, Kristbjörg Kjeld, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þorsteinn Bachmann og fleiri.