Vesalingarnir hafa verið sýndir við miklar vinsældir frá frumsýningu og óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið einstakar. Uppselt hefur verið á allar sýningar og mikil eftirspurn verið eftir miðum. Ákveðið hefur verið að sýna Vesalingana fram í júní og eru þær sýningar nú komnar í sölu. Síðasta sýning leikársins verður þann 23.júní.