Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í nítjánda sinn, og var tilkynnt á þingi Bandalags íslenskra leikfélaga á Ísafirði nú um helgina. Fyrir valinu að þessu sinni varð sýning Leikfélags Kópavogs á Hringnum eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar.
Alls sóttu ellefu leikfélög um með jafn margar sýningar. Öll verkin voru eftir íslenska höfunda, og voru sjö þeirra frumsamin fyrir félögin en fjögur voru áður sýnd íslensk verk.
Í dómnefnd sátu Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins, Jana María Guðmundsdóttir leikkona og Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri var formaður dómnefndar.
Umsögn dómnefndar um sýninguna er svohljóðandi: "Leikfélag Kópavogs sýnir skemmtilega dirfsku í verkefnavali sínu en Hringurinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur er óvenjulegt og frumlegt nýtt íslenskt leikrit. Leikstjórinn Hörður Sigurðsson og leikhópur blása svo lífi í þann lítt hversdagslega heim sem höfundur dregur upp mynd af í verki sínu. Við hverfum inn í furðuheim sirkussins þar sem spurningamerki eru sett við ýmsar viðteknar hugmyndir okkar og leggjum ásamt aðalpersónunni í ferð í leit að leyndarmálum fortíðar. Í meðförum Leikfélags Kópavogs verður þessi ferð full af spennu og ógnum, en jafnframt hugljúf og nostalgísk, meðal annars fyrir tilstilli tónlistar og myndbandsbrota sem sýna sirkuslífið í fortíðinni. Hinn sjónræni þáttur sýningarinnar er vel unninn og hugvitssamlegur og leikarar standa sig með prýði."
Þjóðleikhúsið býður Leikfélagi Kópavogs að sýna Hringinn í Þjóðleikhúsinu í júní.