Þann 27. apríl var Afmælisveislan eftir nóbelsskáldið Harold Pinter frumsýnd í Kassanum í leikstjórn Guðjóns Pedersen. Viðtökur hafa verið afar jákvæðar enda uppselt á nær allar fyrirhugaðrar sýningar verksins í vor.
Silja Aðalsteinsdóttir fjallar um verkið á vefnum TMM. Þar segir hún meðal annars: Frábært verk, frábærlega valið í öll hlutverk, einstök upplifun."
Hérna má lesa umfjöllun hennar.Valur Grettisson fjallar um verkið á Reykvélinni: “Afmælisveislan er traust verk. Það er fyndið í absúrdleika sínum. Það er hrollvekjandi í óskiljanleika sínum. Og það er konfekt fyrir augað.”
Hérna er hægt að lesa umfjöllun hans í heild sinni.