Nýtt íslenskt verk eftir Hávar Sigurjónsson í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir næsta haust nýtt verk eftir Hávar Sigurjónsson, Jónsmessunótt. Forvinna verksins með leikhópi er nú hafin, en verkið verður fullæft í haust og frumsýnt í Kassanum í október.
Nýr leikstjóri þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu við uppsetningu verksins, en það er Harpa Arnardóttir, sem meðal annars vakti mikla athygli fyrir uppsetningu sína á Súldarskeri og á að baki fjölmörg verkefni í leikhúsi sem leikari og leikstjóri. Um leikmynd sér Finnur Arnar Arnarson.
Verkið er tragikómískt og fjallar um íslenska fjölskyldu í nútímanum sem kemur saman í sumarbústað fjölskyldunnar, til að fagna hálfrar aldar brúðkaupsafmæli foreldranna. Saga fjölskyldunnar endurspeglar það samfélag sem hún hefur hrærst í, en er ekki hægt að endursemja allar sögur? Það er að minnsta kosti skoðun ættföðurins, sem gefur afkomendum sínum ekkert eftir í baráttunni um yfirráð yfir minningum, völdum og eignum.
Kristbjörg Kjeld og Arnar Jónsson fara með hlutverk foreldranna og þeir Þorsteinn Bachmann og Atli Rafn Sigurðarson leika syni þeirra. Edda Arnljótsdóttir fer með hlutverk tengdadótturinnar og Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikur sonardótturina. Maríanna Clara Lúthersdóttir þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í hlutverki nýrrar kærustu annars sonarins.
Þjóðleikhúsið sýndi leikrit Hávars Pabbastrákur (2003) og Grjótharðir (2005). Hafnarfjarðarleikhúsið sýndi leikrit hans Englabörn (2001) og Höllu og Kára (2008). Verk hans hafa einnig verið sviðsett í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada.
Þjóðleikhúsið leggur ríka áherslu á samstarf við íslensk leikskáld og munu fleiri ný íslensk verk á verkefnaskrá næsta leikárs verða kynnt síðar.