Um helgina verður frumsýnd óvenjuleg danssýning í Kúlunni, en hún er ætluð allra yngstu leikhúsgetunum, eða börnum frá sex mánaða til þriggja ára
Litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna. Sýningin tekur tæpan hálftíma en í lok hennar er börnunum boðið að koma á sviðið til að leika sér, hitta verurnar og skoða leikmyndina.
Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir
Sviðsmynd, leikmunir og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir og Tessa-Sillars Powell
Dansarar: Inga Maren Rúnarsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir.