16.02 2012

Störf listamanna við Þjóðleikhúsið 

Þjóðleikhúsið auglýsir  laus til umsóknar nokkur störf listamanna, vegna leikársins 2012 - 2013.
Um er að ræða skuldbindingu vegna einstakra verkefna, eins leikárs eða lengri tíma.
Aðeins koma til greina einstaklingar með menntun í listum og / eða víðtæka starfsreynslu á listasviði.  
Laun fara eftir kjarasamningi viðkomandi stéttarfélaga og fjármálaráðherra.
Umsóknum ásamt ferilsskrá skal skilað til Þjóðleikhússins fyrir 15. mars á netfangið leikhusid@leikhusid.is

Óskum um nánari upplýsingar eða beiðni um viðtal skal senda á sama netfang.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. 

Umsóknareyðublað má nálgast hér.

Um er að ræða störf sviðslistamanna, eða leikara, leikstjóra, leikmynda- og búningahöfunda og annarra listrænna stjórnenda, sem koma að listrænum störfum við sviðsetningu einstakra sýninga Þjóðleikhússins. Auglýsingin er birt í samræmi við sérreglur á auglýsingu á lausum störfum starfsmanna þjóðleikhússins sem settar voru samkvæmt heimild í 2.ml. 2.mgr. 7.gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.


Fréttir



Letur breytingar


Leit