Sýningum á meistaraverki Arthurs Millers Allir synir mínir, í rómaðri uppsetningu Stefáns Baldurssonar, lýkur nú um helgina.
Áætlað hafði verið að síðasta sýning yrði nú á laugardag, en ákveðið hefur verið að bæta við einni aukasýningu daginn eftir, sunnudaginn 27. nóvember. Sala er hafin á þá sýningu, sem verður jafnframt allra síðasta sýning á verkinu. Við hvetjum leikhúsunnendur til að grípa síðasta tækifærið til að sjá þetta magnaða verk í meðförum frábærra listamanna.