07.11 2011

Allir synir mínir aftur á svið

Leikritið Allir synir mínir eftir Arthur Miller í leikstjórn Stefáns Baldurssonar var frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins á síðasta leikári. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og einstakar viðtökur meðal leikhúsgesta og nú í nóvember verða fimm aukasýningar á verkinu.

Sýningin var tilnenfd til 6 Grímuverðlauna, meðal annars sem sýning ársins. Sýningin hætti fyrir fullu húsi í vor og ákveðið var að sýna fimm aukasýningar á þessu leikári.  Þetta er magnþrungið, sígilt verk um það sem getur gerst þegar græðgi og stundarhagsmunir ráða ferðinni. Hér fer saman fín leikstjórn og leikur eins og hann gerist bestur.
Fyrstu sýningar á verkinu verða 10. og 11. nóvember en sýningar verða aðeins fimm, svo það er síðust forvöð að tryggja sér sæti!

Fréttir



Letur breytingar


Leit