27.10 2011

Hreinsun frumsýnd

Rétt í þessu var að ljúka frumsýningu á Hreinsun eftir Sofi Oksanen á Stóra sviðinu. Áhorfendur fögnuðu sýningunni og listamönnunum innilega.  

Með aðalhlutverk í sýningunni fer Margrét Helga Jóhannsdóttir en hún snýr aftur á svið Þjóðleikhússins í Hreinsun eftir fjörtíu ára hlé.

Með önnur hlutverk fara Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Þorsteinn Bachmann, Pálmi Gestsson og Ólafur Egill Egilsson

Leikstjóri er Stefán Jónsson, Ilmur Stefánsdóttir gerir leikmynd, Þórunn María Jónsdóttir sér um búninga, tónlist og hljóðmynd gerir Paul Corley, lýsingin er í höndum Halldórs Arnar Óskarsson og þýðingin er eftir Sigurð Karslsson.



Fréttir



Letur breytingar


Leit