15.09 2011

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk, Svartan hund prestsins, 17. september

Svartur hundur prestsins er fyrsta leikrit Auðar Övu Ólafsdóttur, en hún hefur undanfarið skapað sér nafn sem einn athyglisverðasti skáldsagnahöfundur okkar. Síðasta skáldsaga hennar Afleggjarinn hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, farið sigurför um Frakkland og Kanada og öðlast miklar vinsældir.

Í leikritinu kynnumst við ættmóður sem býður syni sínum, tveimur dætrum og tengdasyni í vöffluboð til að greina frá ákvörðun sem kemur öllum í opna skjöldu. En þetta vöffluboð er ekkert venjulegt kaffisamsæti. Dæturnar þurfa að takast á við gerbreyttar aðstæður í samskiptum við móður sína en lenda auk þess í átökum við bróður sinn sem kominn er langt að og hefur ákveðið að gerast boðberi sannleika sem allir vilja forðast. Hér er svo sannarlega boðið upp í óvenjulegan dans!

Í þessu ögrandi sviðsverki stefnir hópur listamanna saman ólíkum listgreinum. Í gegnum leiklist, dans, tónlist og myndlist er unnið á skemmtilegan og frumlegan hátt með persónusköpun og tungumál, og leikið með samspil orða og athafna, leikhúss og veruleika. Undir niðri lúra ýmsar áleitnar spurningar, til dæmis um skyldur okkar við fjölskylduna – og meðbræður okkar á jörðinni - og ekki síst um það að hve miklu leyti fortíðin með öllu sínu ægivaldi er okkar eigin tilbúningur?

Leikstjóri sýningarinnar er Kristín Jóhannesdóttir, Elín Hansdóttir gerir leikmynd,  Helga Björnsson sér um búninga, tónlist og hljóðmynd gerir Gísli Galdur Þorgeirsson, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir sér um sviðshreyfingar og lýsing er í höndum Halldórs Arnar Óskarssonar.

Kristbjörg Kjeld fer með hlutverk ættmóðurinnar í verkinu en aðrir leikarar eru Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og Nanna Kristín Magnúsdóttir.

 



Fréttir



Letur breytingar


Leit